Með Landspítalaappinu getur þú fengið mikilvægar upplýsingar um þig og dvöl þína á spítala í snjalltækjum hvar og hvenær sem er um leið og þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum. Við innskráningu getur þú samþykkt að fá tilkynningar frá Landspítala beint í síma til að geta fylgst með þróun mála í rauntíma. Í appinu getur þú fengið eftirfarandi upplýsingar: - Innlögn/komu - Tímabókanir - Stöðu biðlista og tilvísana - Síðustu rannsóknir - Ofnæmisupplýsingar - Meðferðir - Fræðsluefni - Tilkynningar Hægt er líka að uppfæra hæð, þyngd og símanúmer og uppfæra eða skrá aðstandendaupplýsingar. Á meðan dvalið er á spítala er hægt að skoða: - Þróun lífsmarka - Lyfjaupplýsingar - Upplýsingar um ábyrga starfsmenn: ábyrgur læknir, hjúkrunarfræðingur á vakt, sjúkraliði á vakt - Upplýsingar um fæði - Hvað er framundan og hvað var gert: upplýsingar birtast í dagbókinni - Upplýsingar um deildina Appið gerir þér kleift að hafa samband við starfsfólk deildarinnar með því að senda skilaboð þegar þú dvelur á spítala.