Með Endurvinnslu appinu getur þú fengið skilagjaldið greitt inn á bankareikning að eigin vali.

Einnig er hægt að fá sendar kvittanir í gegnum tölvupóst.

Þegar þú hefur fyllt út greiðsluupplýsingar, kennitölu og bankareikning getur þú tekið mynd af QR kóða á talningamiða og færð skilagjaldið millifært inn á þann reikning sem þú valdir.

Við vonum að þessi greiðslulausn nýtist viðskiptavinum okkar vel.

Takk fyrir að leggja þitt af mörkum við að halda náttúru okkar hreinni. -
Endurvinnslan flöskumóttaka